SupportSupport
Hera - Óskalögin 10 - Talað við gluggann
Óskalögin 10
01. Undir þínum áhrifum
02. Einhvers staðar einhvern tímann aftur
03. Spenntur
04. Nótt eftir dag
05. Alla tíð
06. Fljúgum áfram
07. The Real Me
08. Stun Gun
09. My Delusions
10. Won't Go Back
11. Kumbh Mela
12. If
13. Meðan ég sef
14. Fallegur dagur
15. Pabbi þarf að vinna
16. Flauelsföt
17. Jesús Kristur og ég
18. Þú gætir mín
19. Þú bíður (allavegana) eftir mér
20. Gleðitímar
21. Bolur inn við bein
22. Við Gróttu
23. Lífið er lotterí
24. Passíusálmur nr. 51
25. Þú fullkomnar mig
26. Dag sem dimma nátt
27. Fæ aldrei nóg af þér
28. Talað við gluggann
29. Lög unga fólksins
30. Allt sem ég á
31. Stórir hringir
32. Hún
33. Ástarfár
34. Maður með mönnum
35. Eitthvað er í loftinu
36. Neðanjarðar
37. Jacuzzi Suzy
38. Stick'Em Up
39. Drugs
40. Ungfrú orðadrepir
Ég hef staðið við gluggann, heyrt hann tala
um komandi harðæri, nístandi él.
Aldrei fyrr séð hann svo hryggan stara.
Þegar þú kvaddir hvað ég skildi hann vel.

Sumarið er farið, það fraus í hylnum.
Eins og hvítt lín kom fyrsti snjórinn í nótt.
Þrestirnir dansa á ísuðum línum
en hér inni er allt stillt og rótt.

Eldurinn í arninum með seiðandi skugga,
spyr mig: Hvar er hún í nótt
sem var vön að halda um höfuð þitt og rugga
þér blítt þar til allt var hljótt?
Og ég get ekki,
og ég get ekki,
og ég get ekki,
og ég get ekki,
og ég get ekki,
svarað því.

Ég hef staðið við gluggann, heyrt hann tala,
spurt hef ég hann: Sér hann þig þar sem þú ferð?
Þakinn rósum, kaldur - vill ekki svara
hvort ást til mín í hjartanu þú berð.

Ég hef staðið við gluggann, séð hann stara
á norðanvindinn, út í fjúkinu leika sér.
Stundum heyri ég hlátur, í gólffjölum marra,
hjartað tekur kipp en það er ekkert hér.

Eldurinn í arninum með seiðandi skugga,
spyr mig: Hvar er hún í nótt
sem var vön að halda um höfuð þitt og rugga
þér blítt þar til allt var hljótt?
Og ég get ekki,
og ég get ekki,
og ég get ekki,
og ég get ekki,
og ég get ekki,
svarað því.