SupportSupport
Sigur Rós & Steindór Andersen - Rímur EP - Fjöll í austri fagurblá
Rímur EP
01. Kem ég enn af köldum heiðum
02. Til ei lætur tíðin mér
03. Fjöll í austri fagurblá
04. Slær á hafið himinnblæ
05. Hugann seiða svalli frá
06. Lækurinn
Fjöll í austri fagurblá
Freista dalabarnsins.
Ungur fylgir æskuþrá
Upp til jökulhjarnsins.

Sveimað heimahögum frá
Hef ég vors á degi,
Víða stíða þræddi þá
þunga hraunavegi.

Heiðin breiða hugumkær
Hvetur viljann ofar.
Leiðin seiðir, fráum fær,
Fögrum sýnum lofar.

Gangan sækist öruggt enn
Urðarróti móti.
Einatt hlutu heiðamenn
Höggvinn fót á grjóti.

Hver, sem ofar á að ná,
Einskis metið getur
þótt í fangið fái sá
Fjúk og hretið betur.

Anda heitum yndi nóg
Unaðsreitir geyma.
Seinna leitar þráin þó
þinna sveita heima.