SupportSupport
Björk & Tríó Guðmundar Ingólfssonar - Gling‐Gló - Litli tónlistarmaðurinn
Gling‐Gló
01. Gling Gló
02. Luktar‐Gvendur
03. Kata rokkar
04. Pabbi minn
05. Brestir og brak
06. Ástartöfrar
07. Bella símamær
08. Litli tónlistarmaðurinn
09. Það sést ekki sætari mey
10. Bílavísur
11. Tondeleyo
12. Ég veit ei hvað skal segja
13. Í dansi með þér
14. Börnin við Tjörnina
15. Ruby Baby
16. I Can’t Help Loving That Man
Mamma - ertu vakandi mamma mín?
mamma - ég vil koma til þín
ó mamma - gaman væri að vera stór
þá vildi ég stjórna - bæði hljómsveit og kór

Mamma - þú ert elskuleg, mamma mín
mér finnst - gott að koma til þín
ó en mamma - áðan dreymdi mig draum um þig
en datt þá framúr - og það trufladi mig

Þú varst drottning í hárri höll
hljómsveitin álfar, menn og tröll
lék þér og söng í senn
þú varst svo stórfengleg

Tröllin þau börðu á bumburnar
blómálfar léku á flauturnar
fiðlurnar, mennskir menn
á mandólín, ég

Mamma

Allir mændum við upp til þín
eins og blóm þegar sólin skín
er þínum faðmi frá
gjafir flugu um allt

Flestum gekk vel að gripa sitt
glaður náði ég fljótt í mitt
en stóll er steig ég á
stóð tæpt, svo hann valt

Ó mamma - þú ert elskuleg mamma mín
mér - finnst gott að koma til þín
ó mamma - gaman væri að vera stór
þá vildi ég stjórna bæði hljómsveit og kór